Unglinganámskeið //
Undanfarin misseri hafa æ fleiri foreldrar komið að máli við mig og beðið um aðstoð til handa börnum sínum vegna offitu. Ég hef unnið með unglingum í þessari baráttu og náð að kenna þeim hvað það er sem skiptir máli. Reynslan hefur kennt mér að árangurinn næst þegar öll fjölskyldan leggst á eitt og þegar allir leggja sig fram ná allir árangri, ekki bara þeir sem mæta til mín, öll fjölskyldan.
Offita er vandamál sem verður að stemma stigu við, það er hægt með því að fagaðilar leiðbeini bæði foreldrum og unglingum í átt að heilbrigðara lífi.
Það er mitt markmið.
17.janúar hefst námskeið ætlað unglingum á aldrinum 12-14 ára sem glíma við ofþyngd og offitu, ætlunin er að klára stutt fjögurra vikna námskeið fyrir jól og byrja svo af fullum krafti á nýju ári.
Markmið námskeiðsins er að kenna unglingum hversu mikilvæg hreyfing og hollt mataræði eru í dagsins önn og stemma stigu við síaukinni offitu og kyrrsetu íslenskra ungmenna.
Uppbyggingin er einföld og byggir á því að; styrkja þá hegðun sem felst í hreyfingu og hollustu, hvetja unglingana og fjölskyldur þeirra í hreyfingu, kenna bæði unglingum og foreldrum hvað felst í hollum lífvenjum.
- Unglingar fá stigakort þar sem þau eru hvött til að safna eins mörgum stigum og hægt með hollum lífsháttum.
- Í hverri viku fá unglingarnir heimaverkefni sem þeir eiga að vinna í samstarfi við fjölskylduna.
- Sömu reglur gilda um fjölskylduna og unglinginn sjálfan, mataræði og regluleg hreyfing er grunnurinn að árangrinum.
- Tvisvar í viku hittumst við í Sporthúsinu, hreyfum okkur og höfum gaman að því.
- Þriðju hverja viku verður fræðslufundur/fyrirlestur fyrir bæði unglinga og foreldra þar sem farið verður yfir ýmist atriði sem tengjast heilbrigðum lífsstíl.
Hvert námskeið er í 6 vikur og kostar aðeins 14.000kr.
Einungis 10 einstaklingar verða í hverjum hóp til að tryggja að enginn hverfi í fjöldanum og allir fái þá athygli sem þeir þurfa til að ná þeim markmiðum sem sett eru.





