July 10th, 2010
Heilbrigð sál í hraustum líkama segir gamla máltækið. Það vilja nefnilega allir vera ímynd heilbrigðinnar,

ímynd hreystinnar og lifa heilsusamlegu lífi; er það ekki annars það sem allir ætla sér innst inni???
NEI! 99% þeirra sem segjast ætla að taka upp heilbrigðari lífsstíl gera það af einni, einfaldri ástæðu; líta betur út! Ekki þykjast vera “holier than thou” og segjast ekki vera einn af þeim því svona erum við orðin, við erum upp til hópa útlitsdýrkendur sem viljum fátt meira en six-packið og byssurnar.
Málið er bara að mér er nákvæmlega sama hvað þú notar sem motivation svo fremi að þú nýtir það almennilega og komið þér í gott form! Það er einföld staðreynd að þeir sem eru í betra formi eru ólíklegri til að fá hjartaáfall, sykursýki II, asthma, þunglyndi o.s.frv.
Allir lífsstílssjúkdómar eru líklegri hjá þeim sem ekki hreyfa sig.
Það skiptir engan nema þig máli hvað motiverar þig svo fremi að það skili tilætluðum árangri!
July 2nd, 2010
Loksins komin ný 6 vikna prógröm!!!
- Ítarlegar leiðbeiningar
- Myndir sem sýna hverja æfingu
- Allt unnið út frá “core” vöðvum (kviður og bak)
Verðugt challenge fyrir þá/þær sem ætla sér að vera duglegir/-ar í sumar!
6000kr fyrir þá sem vilja þetta ofsalega fínt og útprentað, 5000kr fyrir þá tölvuvæddu sem vilja bara fá pdf skjal.
Áhugsamir geta sent póst á karvelio@karvelio.com // sirry78@gmail.com eða hringt í 825-0101 // 863-7088.
June 3rd, 2010

Fyrir þá fróðleiksþyrstu þá er lokaritgerðin mín til B.Sc. gráðu í Íþróttafræði komin á netið, nánar tiltekið á heimasíðu KSÍ. Hún ber heitið “Líkamsþjálfun knattspyrnumanna” og er samantekt á rannsókn minni á líkamsþjálfun liða í efstu deildum karla og kvenna 2010. Fyrir þá sem vilja glugga í hana, endilega smellið hér!
June 1st, 2010
Eftir erfið veikindi og stranga lyfjameðferð vegna krabbameins var ég sundurtætt og brotin á líkama og sál. Aukakílóin hlóðust upp og ég var orðin vægast sagt ósátt með mitt útlit og þrek. Í ágúst 2009 hafði ég samband við Fannar Karvel einkaþjálfara um að taka mig í þjálfun og er það ein af bestu ákvörðunum sem ég hef tekið um ævina. Fjölbreyttar,krefjandi og skemmtilegar æfingar gerðu það að verkum að alltaf var gaman að koma á æfingu. Alltaf mætti manni bros, jákvæðni og hvatning! Í dag, 9 mánuðum seinna er hreyfing orðin ómissandi hluti af mínu daglega lífi og andlegt jafnvægi gæti ekki verið betra:)
Takk Fannar fyrir að hafa trú á mér….Nú er ég tekin við og hef öðlast fulla trú á sjálfri mér.
Hallveig Guðmundsdóttir, 25 ára.
May 30th, 2010
Sumarið er komið og grill/bjór seasonið mætt! Er þá ekki tími til að hætta að æfa? Það nennir hvort eð er enginn að æfa inni í sól og blíðu…
Alveg rétt; grill og bjór seasonið er komið og það nennir enginn að æfa inni. Farðu þá út í sólina og æfðu! Hlauptu eða hjólaðu þér til upphitunar og taktu síðan styrktaræfingar með því sem býðst utandyra. Það hafa allir sem eru í þjálfun hjá mér æft úti yfir sumartímann og það er hægt að gera HELLING af æfingum í Kópavogsdalnum
Fasteignasalarnir mínir, Hannes Steindórsson og Gylfi Gylfason tóku síðustu viku alfarið úti einsog sjá má…



Karvelio.com og CoreTraining bjóða upp á sumarfjarþjálfun: 3mánuðir (júní, júlí og ágúst) á aðeins 20.000kr.
Allar æfingar hægt að gera jafnt úti sem inni og því aðeins letin sem getur stoppað þig!!
May 20th, 2010
Fyrir ykkur sem eruð að leita að “nýjasta nýtt í fitubrennslu” lesið áfram!
Það eru nefnilega til nokkrar reglur í sambandi við þetta vandamál mannkyns, reglur sem hafa verið vel faldar í gegnum tíðina. Þetta er leyndarmál sem ekki margir vita af en allir eru að leita að og ég ætla að segja þér frá því.
Reglurnar (Boðorðin) eru 5;
1. Þú skalt borða fisk minnst tvisvar í viku.
2. Þú skalt borða mikið af grænmeti og ávöxtum.
3. Þú skalt borða eins náttúrlegan mat og hægt er (óunnin).
4. Þú skalt borða eins lítið af mettaðri fitu og hægt er (smjör, rjómi, kókosfeiti o.s.frv.)
5. Þú skalt hreyfa þig amk. 40mín á hverjum degi.
Þetta er ekki svo flókið er það? Wake up stupid and smell the coffee, þetta eru ekki geimvísindi og þetta snýst ekki um að “fæðast mótiveraður” einsog Ragga Nagli, frænka Karvelio’s, skrifar um á blogginu sínu. Þetta snýst um að gera einfalda hluti á einfaldan hátt og standa við þá!
Kv. Karvelio