You heard me right! Fimm einfaldar leiðir til að ná árangri á vellinum og í speglinum!
#1 – HIIT æfingar EKKI rólegaheita “brennsla”
Rólegheita brennsla skilar þér nákvæmlega ekki neinu nema minni tíma með fjölskyldu og vinum. Train hard, train fast! HIIT (High Intensity Interval Training) eða leyndarmál fræga fólksins einsog frk. Johnson kallar það, skilar þér betra þoli, minni fitu og í heildina mun betri æfingu.
#2 – Flóknar æfingar
Flóknar æfingar sem reyna á fleiri en ein liðamót, svokallaðar multi-joint æfingar, nýta stærri hluta vöðvamassans og brenna þannig meiru en “hefðbundnar” einnar liðamóta æfingar. Þess utan virkja þær stærri hluta vöðvans sem stækkar hann hraðar, ef það er eitthvað sem þú sækist eftir.
#3 – Fótaæfingar
Brjóst og Bís eru einna minnstu vöðvar líkamans, ekki eyða öllu púðrinu í e-ð sem varla sést í spegli hvort eð er. Hnébeygja, framstig, réttstaða o.s.frv. ættu að vera á “matseðli” hvers manns.
#4 – MOVE IT!
Líkaminn vinnur ekki öllu jafnan í ákveðnum föstum hreyfingum heldur í flóknum, margþættum hreyfingum; hægum, hröðum, stökkum, hlaupum, veltum o.s.frv. Ekki festa þig við lóð eða tæki, hreyfðu þig og hafðu gaman að því, vertu 5 ára aftur!
#5 – Éttu!
Ekki svelta þig einsog 14ára súpermódel á Ítalíu, hversu heitt sem þú óskar þess verðuru það ekki og átt ekki að borða tvö salatblöð og pappakassa á hverjum degi. Borðaðu ávexti, grænmeti, gróft brauð, kjöt og fisk. Ef þú klárar þetta án þess að djúpsteika allan pakkann þá ertu í góðum málum, svo fremi að þú étir ekki líkamsþyngd þína á hverjum degi.
Ótrúlega einfalt! Furðulegt að svona fáir hafi áttað sig á þessu, þetta er varla stjarneðlisfræði! Nú er bara að gera eitthvað í málinu…


.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
… og spurningin er hvor gæjinn vilt þú vera?
RSS Feed

Posted in 