Heilbrigð sál í hraustum líkama segir gamla máltækið. Það vilja nefnilega allir vera ímynd heilbrigðinnar,

ímynd hreystinnar og lifa heilsusamlegu lífi; er það ekki annars það sem allir ætla sér innst inni???
NEI! 99% þeirra sem segjast ætla að taka upp heilbrigðari lífsstíl gera það af einni, einfaldri ástæðu; líta betur út! Ekki þykjast vera “holier than thou” og segjast ekki vera einn af þeim því svona erum við orðin, við erum upp til hópa útlitsdýrkendur sem viljum fátt meira en six-packið og byssurnar.
Málið er bara að mér er nákvæmlega sama hvað þú notar sem motivation svo fremi að þú nýtir það almennilega og komið þér í gott form! Það er einföld staðreynd að þeir sem eru í betra formi eru ólíklegri til að fá hjartaáfall, sykursýki II, asthma, þunglyndi o.s.frv.
Allir lífsstílssjúkdómar eru líklegri hjá þeim sem ekki hreyfa sig.
Það skiptir engan nema þig máli hvað motiverar þig svo fremi að það skili tilætluðum árangri!
RSS Feed

Posted in 