“…hreyfing orðin ómissandi hluti af mínu daglega lífi …”

Eftir erfið veikindi og stranga lyfjameðferð vegna krabbameins var ég sundurtætt og brotin á líkama og sál. Aukakílóin hlóðust upp og ég var orðin vægast sagt ósátt með mitt útlit og þrek. Í ágúst 2009 hafði ég samband við Fannar Karvel einkaþjálfara um að taka mig í þjálfun og er það ein af bestu ákvörðunum sem ég hef tekið um ævina. Fjölbreyttar,krefjandi og skemmtilegar æfingar gerðu það að verkum að alltaf var gaman að koma á æfingu. Alltaf mætti manni bros, jákvæðni og hvatning! Í dag, 9 mánuðum seinna er hreyfing orðin ómissandi hluti af mínu daglega lífi og andlegt jafnvægi gæti ekki verið betra:)
Takk Fannar fyrir að hafa trú á mér….Nú er ég tekin við og hef öðlast fulla trú á sjálfri mér.
Hallveig Guðmundsdóttir, 25 ára.

You can leave a response, or trackback from your own site.

Leave a Reply