Archive for the ‘Kúnnar’ Category

“…hreyfing orðin ómissandi hluti af mínu daglega lífi …”

Eftir erfið veikindi og stranga lyfjameðferð vegna krabbameins var ég sundurtætt og brotin á líkama og sál. Aukakílóin hlóðust upp og ég var orðin vægast sagt ósátt með mitt útlit og þrek. Í ágúst 2009 hafði ég samband við Fannar Karvel einkaþjálfara um að taka mig í þjálfun og er það ein af bestu ákvörðunum [...]

Sterkasti Fasteignasalinn?

Hér með vill ég skora á alla fasteignasala landsins í keppni!
– Sterkasti Fasteignasalinn –

Í þjálfun hjá mér er maður sem ætti að taka þessa keppni, Hannes Steindórsson, stundum titlaður fasteignasali fræga fólksins. Hann mætti einsamall á æfingu í gær þar sem æfingafélaginn var “slappur”, ákveðið var að sjá hvað byggi í kappanum; byrjað á léttri upphitun og svo tekið til við bekkpressuna og endaði hann

Nýtt á nýju ári – afsláttur af einkaþjálfun

Við upphaf nýs árs reynir fólk að efna áramótaheitin sem sett voru með góðum hug, oftar en ekki tengjast þessi heit hollari lífstíl og meiri hreyfingu. Þetta er gott og blessað sé rétt að þessu staðið, Karvelio.com vill hjálpa fólki að láta þessi heiti rætast! Með það í huga ætlum við að bjóða þeim sem [...]

Hvernig er í þjálfun hjá Fannari?

„Í haust stóð ég frammi fyrir því að vera á leið í íþróttafræðinám við Háskólann í Reykjavík engan vegin í líkamlegu ástandi til að takast á við það.  Ég hafði brotið á mér hnéskelina nokkrum mánuðum áður og var þar til nýbúin að fara í aðgerð á hné.  Ég leitaði á náðir Fannars í þeim [...]

Mind over Matter // Harðari en allt!

Hulda Bjarkar setti í gær Íslandsmet! Stelpan réri í tíu og hálfa klukkustund og lagði að baki 103km sem er mesta vegalengd sem nokkur manneskja hefur róið á Íslandi! — Myndir af afrekinu –

Það þarf varla að fjölyrða um það hversu stoltur ég er af því að hafa fengið að þjálfa hana fyrir þetta afrek og fá að sjá hvert rétt hugarfar getur komið fólki.

Íslandsmet!

Nú er árveknismánuður um brjóstakrabbamein og af þeim sökum ætlar einn af fjarþjálfunarnöglunum mínum að leggja sitt lóð á vogarskálarnar. Hún Hulda ætlar að setja nýtt íslandsmet í lok mánaðarins og  safna áheitum frá hinum ýmsu aðilum til styrktar málefninu. Hún hefur æft einsog skepna undanfarna mánuði eftir langa pásu og verið öðrum góð fyrirmynd í því [...]