Skip to content

Undanfarin ár hefur kyrrseta barna og unglinga aukist til muna með tilkomu sjónvarpstækja í hverju herbergi og aukinnar tölvunotkunar. Matarvenjur hafa líka breyst mikið og nú er svo komið að nammidagurinn inniheldur fleiri hitaeininingar heldur en góð vika ásamt því að sykraðir drykkir, kex, kökur og sætindi eru allsráðandi. 

Þessu vil ég stemma stigum við með því að;

– Kenna unglingum að hreyfing sé skemmtileg og þurfi ekki að vera tengd keppnum.

– Kenna unglingum að hollur matur þurfi ekki að vera vondur.

– Kenna unglingum að taka meiri ábyrgð á eigin lífi og hvetja fólk í kringum sig til hollari lífshátta.

Uppbyggingin er einföld og byggir á því að; styrkja þá hegðun sem felst í hreyfingu og hollustu, hvetja unglingana og fjölskyldur þeirra í hreyfingu, kenna bæði unglingum og foreldrum hvað felst í hollum lífvenjum.
– Unglingar fá stigakort þar sem þau eru hvött til að safna eins mörgum stigum og hægt með hollum lífsháttum.
– Í hverri viku fá unglingarnir heimaverkefni sem þeir eiga að vinna í samstarfi við fjölskylduna.
– Sömu reglur gilda um fjölskylduna og unglinginn sjálfan, mataræði og regluleg hreyfing er grunnurinn að árangrinum.
– Tvisvar í viku hittumst við í Sporthúsinu, hreyfum okkur og höfum gaman að því.
- Tvisvar á tímabilinu verða fyrirlestrar fyrir bæði foreldra og unglinga um holla lífshætti.

Hvert námskeið er í 6 vikur og kostar aðeins 10.000kr.

Einungis 12 einstaklingar verða í hverjum hóp til að tryggja að enginn hverfi í fjöldanum og allir fái þá athygli sem þeir þurfa til að ná þeim markmiðum sem sett eru.

SKRÁÐU UNGLINGINN ÞINN HÉRNA!

Share Our Posts

Share this post through social bookmarks.

  • Delicious
  • Digg
  • Newsvine
  • RSS
  • StumbleUpon
  • Technorati

Comments

Tell us what do you think.

There are no comments on this entry.

Trackbacks

Websites mentioned my entry.

There are no trackbacks on this entry

Karvel.is á Fésinu

Metabolic Kópavogi