Próteinríkt og grænt?

graenmeti_030308

Prótein er aðalinn í heilsuræktinni í dag, það er enginn maður með mönnum nema hann innbyrði nægjanlegt próteinmagn á degi hverjum til að það leki út um eyrun.
Hver einasti maður sem kemur inn í líkamsræktarstöð á próteindunk, drekkur Hleðslu milli mála og borðar kjúkling amk einu sinni á dag.
Hljómar ótrúlega gott plan ekki satt?
Það er amk. til margt mun verra en þetta. Hvernig er samt með þá sem fá klígju við að sjá próteindunkinn eða borða ekki mjólkurvörur og eru jafnvel grænmetisætur, hvað gerir þetta fólk?

Þetta fólk tekur sér lúku af spínati í hönd og borðar með bestu lyst, síðan nokkrar baunir og skolar þessu niður með brokkolí; úr þessu fær fólk próteinskammtinn sinn.
Bíddu, bíddu! Er ekki grænmeti kolvetnagjafi? Jú, alveg rétt en það sem fæstir vita er að það inniheldur líka ótrúlega mikið magn próteina.

Prótein per 100g.
- Spínat 2,6gr
- Brokkolí 5,2gr
- Baunir 5,9gr
- Hvítlaukur 6,4gr
- Soya baunir 6,2gr

Bara svo dæmi séu nefnd.

Ég held áfram að eiga próteindunkinn og Hleðsluna auk þess sem frúin grillar svakalega kjúkling í Foreman grillinu og þú ættir að gera það líka en það er meira en mögulegt að fá e-n hluta af próteinskammtinum sínum úr grænmetinu.

Responses are currently closed, but you can trackback from your own site.

Comments are closed.