Ótrúleg Töfraæfing fyrir Fitubrennslu!

concept of the magical golden pill to cure all decease

Þú last rétt, ég ætla að segja þér frá töfraformúlu sem brennir fitunni utan af þér á ótrúlegum hraða! Þetta er ein af þessum töfrapillum sem allir eru að leita að en fáir hafa aðgang að.

Ég er nokkuð viss um að margir eru að deyja úr forvitni núna, skiljanlega, þetta er hluturinn sem svo margir hafa verið að leita að alla ævi.

Ertu tilbúin/nn?

Ótrúlega Töfraæfingin, Galdrapillan sem tryggir að lýsið lekur sem aldrei fyr er;

- MATARDAGBÓK -

Ef þú skrifar samviskusamlega niður allt sem þú lætur ofan í þig, ALLT og lætur sykur, brauð og innantómar hitaeiningar vera, þá er árangurinn öruggur!
Gott fólk, töfrapillan er sú að hætta að borða allan viðbjóðinn sem við látum ofan í okkur á hverjum degi og teljum sjálfsagðan. Brauð úr hvítum sykri, pressaðir kjötafgangar (skinka, pylsur…), sykraðir drykkir, sykur í kaffið, mjólkurafurðir (sykur) o.s.frv. o.s.frv. eru allt hlutir sem þú átt EKKI að láta ofan í þig!

Drekktu kaffið þitt svart, borðaðu ávexti og grænmeti, gróft brauð og drekktu vatn!

Enn og aftur komum við að því að það er ekki til nein töfrapilla, það er þinn eigin hugur sem stjórnar því hvort þú grennist eða ekki, þín eigin neysla sem skilar árangrinum.

Prófaðu að skrifa niður allt sem þú borðar í einn heilan mánuð, slepptu öllum sykri og unnum matvælum. Mánuður er enginn tími þegar kemur að heilli ævi og vel þess virði að “eyða” einum mánuði í að prófa hvernig þú átt að borða.

Ef þig vantar hjálp við þetta þá langar mig að bjóða þér að skila mér matardagbók á hverjum degi, sendu mér póst á Karvel@karvel.is

Responses are currently closed, but you can trackback from your own site.

Comments are closed.