Kominn tími fyrir léttara hjal og fleiri hjálpartæki!
Núna um jólin uppgötvaði ég hrikalega þægilegt æfinga”app”; Swing Timer. Þetta er í raun tól sem auðveldar þér að taka alvöru HIIT æfingar hvar sem er og hvenær sem er, hvort sem þú ert í ræktinni, stofugólfinu eða út í snjónum.
Þú getur sett upp æfingaloturnar; hvíldir, keyrslur og sett og það eina sem þú þarft að hugsa um þegar þú riðar í fótunum af þreytu er “píp, byrja aftur“.
Þegar þú nærð í appið er búið að setja upp nokkrar æfingalotur; klassískt Tabata 20/10, VO2M o.s.frv. sem gerir þetta enn einfaldara!
Þessi snilld er til fyrir Iphone en ég veit ekki með ykkur Android fólkið, þið verðið að skoða ykkur um í “búðinni” ykkar og sjá hvort þetta, eða e-ð í líkingu sé til.




January 16th, 2012
Karvelio
Posted in 
