Samkvæmt óstaðfestum fregnum er ein líkamsræktarstöð á hverja 2.800 Íslendinga og á sama tíma erum við fimmta feitasta þjóð í heimi. Þjóð öfganna indeed.
Hvernig stendur á því að þjóð þar sem allir og amma þeirra eiga “kort í ræktina” og þriðja hver auglýsing á ákveðnum árstímum er um “nýjar stundatöflur í ræktina“, “nýjasta brennslukerfið frá Hollywood” og “léttist um 70kg á tveim vikum“?
Allir kenna um lágu verði á skyndibita og sykurógeði, stórum skömmtum o.s.frv. Ég tel þessa hluti að sjálfsögðu vera hluta af sökinni, allur sykurinn sem við innbyrðum í margföldum ráðlögðum dagskömmtum er náttúrulega ógeðslegur. Stór hluti af sökinni liggur hinsvegar í líkamsræktargeiranum! Líkamsræktargeirinn er stór peningamaskína sem veltir milljörðum á hverju ári hér á Íslandi; einsog áður segir eru líkamsræktarstöðvar á öðruhverju götuhorni, á hinu horninu er fæðubótaefnaverslun. Allir eiga frænda eða vin sem er einkaþjálfari eða hóptímakennari og annarhver maður er hjá einkaþjálfara. Hvernig getur þá verið að þessi geiri eigi sök á vandanum?
Í þessum geira úir og grúir af fólki sem selur þeim sem ekki vita betur fölsk loforð um “40kg á 15 vikum“, “kjólinn fyrir jólin” og hvað þetta allt heitir. Markmið af þessu tagi eru algjörlega ótengd við raunveruleikann í flestum tilfellum en að sjálfsögðu vilja þessir einkaþjálfara ekki selja fólki svikna vöru og keyra því fólkið langt fram yfir öll skynsemismörg í bæði æfingum og mataræði sem oft samanstendur af “grænmetis- og vatnsdögum” (hreinasti sannleikur).
Þessar öfgar verða kannski til þess að einhverjir ná markmiðunum en hvað gerist þegar hönd þjálfarans sleppir blákaldur raunveruleikinn tekur við?
Þá koma ÖLL kílóin tilbaka og rétt rúmlega það, þessi sama manneskja verður því að takast á við fitupúkann aftur og reynir að sjálfsögðu sömu leið aftur því hún virkaði svo vel síðast og BAMM! sami hluturinn gerist aftur. Svona heldur þetta áfram að hlaða upp á sig þar til hið óhjákvæmilega gerist.
Hvað sem hver segir þá er heilsuræktarheimurinn eða öllu heldur líkamsræktarheimurin gegnsýrður af útlitsdýrkun. Það segjast allir vera að bæta heilsu sýna sem þeir að sjálfsögðu eru en aðalmarkmiðið er alltaf að léttast um Xkg SVO maður líti vel út í speglinum, bæta Xcm á upphandleggina SVO maður líti vel út í speglinum.
Hinn almáttugi spegill virðist ráða öllu í þessum heimi, hann og hans illa systir vigtin.
Einsog áður segir er líkamsræktargeirinn því miður fullur af fólki sem á alls ekkert að vera þar, ógrynni fólks sem hefur það eina markmið að tálga til hinn fullkomna líkama algjörlega óháð allri heilbrigði og fyrir vikið uppskerum við einsog við sáum; flottan skrokk í kannski korter (ef við náum því) en óheilbrigði allt okkar líf.
Það þarf fleira fólk í þennan geira sem virkilega veit hvað það er að gera, fólk sem mælir ekki árangur í ótrúlegum fjölda kílóa sem það hefur tekið af fólki heldur í því lífi sem það breytir hverju sinni.




January 10th, 2012
Karvelio
Posted in 
