Prótein er aðalinn í heilsuræktinni í dag, það er enginn maður með mönnum nema hann innbyrði nægjanlegt próteinmagn á degi hverjum til að það leki út um eyrun.
Hver einasti maður sem kemur inn í líkamsræktarstöð á próteindunk, drekkur Hleðslu milli mála og borðar kjúkling amk einu sinni á dag.
Hljómar ótrúlega gott plan ekki satt?
Read more »
Próteinríkt og grænt?
Prótein er aðalinn í heilsuræktinni í dag, það er enginn maður með mönnum nema hann innbyrði nægjanlegt próteinmagn á degi hverjum til að það leki út um eyrun. Hver einasti maður sem kemur inn í líkamsræktarstöð á próteindunk, drekkur Hleðslu milli mála og borðar kjúkling amk einu sinni á dag. Hljómar ótrúlega gott plan ekki [...]
Ótrúleg Töfraæfing fyrir Fitubrennslu!
Þú last rétt, ég ætla að segja þér frá töfraformúlu sem brennir fitunni utan af þér á ótrúlegum hraða! Þetta er ein af þessum töfrapillum sem allir eru að leita að en fáir hafa aðgang að. Ég er nokkuð viss um að margir eru að deyja úr forvitni núna, skiljanlega, þetta er hluturinn sem svo [...]
Tæki og Tól – Swing Timer
Kominn tími fyrir léttara hjal og fleiri hjálpartæki! Núna um jólin uppgötvaði ég hrikalega þægilegt æfinga”app”; Swing Timer. Þetta er í raun tól sem auðveldar þér að taka alvöru HIIT æfingar hvar sem er og hvenær sem er, hvort sem þú ert í ræktinni, stofugólfinu eða út í snjónum. Þú getur sett upp æfingaloturnar; hvíldir, [...]
Föstudagspizza á la Ebba
Ebba kann lagið á að gera hollan mat virkilega góðan (eða góðan mat virkilega hollan, hvernig sem þú snýrð því), hvort heldur sem er; Bon apetit! Friday pizza as we call it in my home, Yay! It will take you no more than 20 minutes to make 2 large pizzas, which means this is cheaper, [...]
Er þetta okkur að kenna?
Samkvæmt óstaðfestum fregnum er ein líkamsræktarstöð á hverja 2.800 Íslendinga og á sama tíma erum við fimmta feitasta þjóð í heimi. Þjóð öfganna indeed. Hvernig stendur á því að þjóð þar sem allir og amma þeirra eiga “kort í ræktina” og þriðja hver auglýsing á ákveðnum árstímum er um “nýjar stundatöflur í ræktina“, “nýjasta brennslukerfið [...]
Próteinríkt og grænt?
January 25th, 2012
Karvelio
Ótrúleg Töfraæfing fyrir Fitubrennslu!
January 24th, 2012
Karvelio Þú last rétt, ég ætla að segja þér frá töfraformúlu sem brennir fitunni utan af þér á ótrúlegum hraða! Þetta er ein af þessum töfrapillum sem allir eru að leita að en fáir hafa aðgang að.
Ég er nokkuð viss um að margir eru að deyja úr forvitni núna, skiljanlega, þetta er hluturinn sem svo margir hafa verið að leita að alla ævi.
Ertu tilbúin/nn?
Ótrúlega Töfraæfingin, Galdrapillan sem tryggir að lýsið lekur sem aldrei fyr er; Read more »
Tæki og Tól – Swing Timer
January 16th, 2012
Karvelio Kominn tími fyrir léttara hjal og fleiri hjálpartæki!
Núna um jólin uppgötvaði ég hrikalega þægilegt æfinga”app”; Swing Timer. Þetta er í raun tól sem auðveldar þér að taka alvöru HIIT æfingar hvar sem er og hvenær sem er, hvort sem þú ert í ræktinni, stofugólfinu eða út í snjónum.
Þú getur sett upp æfingaloturnar; hvíldir, keyrslur og sett og það eina sem þú þarft að hugsa um þegar þú riðar í fótunum af þreytu er “píp, byrja aftur“.
Þegar þú nærð í appið er búið að setja upp nokkrar æfingalotur; klassískt Tabata 20/10, VO2M o.s.frv. sem gerir þetta enn einfaldara!
Þessi snilld er til fyrir Iphone en ég veit ekki með ykkur Android fólkið, þið verðið að skoða ykkur um í “búðinni” ykkar og sjá hvort þetta, eða e-ð í líkingu sé til.
Föstudagspizza á la Ebba
January 14th, 2012
Karvelio Ebba kann lagið á að gera hollan mat virkilega góðan (eða góðan mat virkilega hollan, hvernig sem þú snýrð því), hvort heldur sem er; Bon apetit!
Friday pizza as we call it in my home, Yay!
It will take you no more than 20 minutes to make 2 large pizzas, which means this is cheaper, healthier and quicker than going out to buy a pizza! Although that can be fun sometimes. Read more »
Er þetta okkur að kenna?
January 10th, 2012
Karvelio Samkvæmt óstaðfestum fregnum er ein líkamsræktarstöð á hverja 2.800 Íslendinga og á sama tíma erum við fimmta feitasta þjóð í heimi. Þjóð öfganna indeed.
Hvernig stendur á því að þjóð þar sem allir og amma þeirra eiga “kort í ræktina” og þriðja hver auglýsing á ákveðnum árstímum er um “nýjar stundatöflur í ræktina“, “nýjasta brennslukerfið frá Hollywood” og “léttist um 70kg á tveim vikum“?
Allir kenna um lágu verði á skyndibita og sykurógeði, stórum skömmtum o.s.frv. Ég tel þessa hluti að sjálfsögðu vera hluta af sökinni, allur sykurinn sem við innbyrðum í margföldum ráðlögðum dagskömmtum er náttúrulega ógeðslegur. Stór hluti af sökinni liggur hinsvegar í líkamsræktargeiranum! Read more »
Ekki láta plata þig!
January 8th, 2012
Karvelio Nú er vertíð hjá öllum í heilsuræktargeiranum því allir og amma þeirra þurfa að standa við áramótaheitin sem oftar en ekki voru á þá leið að “komast í betra form/ léttast um Xkg” eða eitthvað í þeim dúr.
Í þessum geira, einsog flestum öðrum, er mikil samkeppni og þjálfarar og kennarar keppast um að ná athygli ykkar. Oft er það gert með ótrúlegum staðhæfingum sem sýna fram á að það sé ekkert mál að komast í gott form, þú þurfir bara akkúrat þennan þjálfara til að hjálpa þér. Stundum er líka gripið til þess ráðs að hafa nöfnin á æfingakerfunum ótrúlega framandi og flott nöfn með fullt af Xum og Zum til þess að sýna fram á hvað æfingarnar séu nýstárlega og flottar. Read more »





